miðvikudagur, 12. febrúar 2014

byrjun febrúar

Halló á ný, gleymdi mér smá eða réttara sagt gleymdi ég blogginu..
Hvað um það, núna er komin febrúar, sem mér finnst fínn mánuður og viti menn ekki útaf valentínusardegi þar sem ég held ekki upp á hann.
Janúar er ekki sá skemmtilegasti, skólinn að byrja eftir jólafrí, allir útþemdir af jólakökum og ekki má gleyma því að þá er komið nýtt ár og það er ekki slæmt að vísu.
Janúar hefur alltaf verið leiðinlegur fyrir mér, alltaf þreytt og löt, en núna er ég loksins að komast í réttu rútínuna. Febrúar kominn og margt spennandi framundan þá helst það að ég fer til Bretlands eftir 2 vikur SPENNANDI...
Ég er að fara til Leeds/Ilkley sem er bær í vesturhluta Bretlands og þar býr besta vinkona mín Malen, hún flutti þangað um miðjan ágúst með fjölskyldunni sinni þar sem pabbi hennar er í 1 árs námi.
Ég, mamma og Halla (besta vinkona okkar) förum saman og ætlum að vera í viku.
 Hlakka svo til að hitta þau öll eftir 6 mánaða fjarveru en ég blogga meira um ferðina seinna.

Febrúar byrjaði bara vel, fyrsta vikan var frekar venjuleg (skóli-fótboltaæfing-heim), nema á þriðjudeginum var starfsdagur kennara þannig það var mjög kósý að sofa út í miðri viku.
Um helgina komu bróðir minn og kærastan hanns í heimsókn en þau búa í Reykjavík.
Ég var að hitta kærustuna hanns í fyrsta skipti og það var mjög gaman að kynnast henni.
Laugardagskvöldið fóru þau, ásamt mömmu og pabba og systur minni á Króksblót sem er þorrablót hér á Sauðárkróki, en aldurstakmarkið er 18 ára svo ég fór ekki með.
Við frændsystkinin hittumst og gistum, borðuðum pizzu og nammi og horfðum á mynd. Held ég hafi sjaldan borðað jafn mikið af nammi en jájá ræðum það ekkert.
 Þetta var 4 daga helgi þar sem það voru foreldraviðtöl á mánudaginn. Ég mætti klukkan 2 með foreldrum mínum og fékk vitnisburð fyrir miðönnina og það kom vel út og ég er mjög sátt.
 Var ekki lengi í sæluvímu þar sem veikindin bönkuðu upp á.
 Það ringdi úr augunum á mér og ég hnerraði stanslaust þetta var orðið dáldið þreytandi, ég hef alltaf verið mjög góð í því að ná mér í kvef...
Þetta breyttist reyndar í 5 daga helgi þar sem ég fór ekki í skólan í gær því þá var ég komin með hita.
Soldið þreytandi að liggja heima í tölvunni tvo daga í röð, ég lá yfir tískubloggum og youtube channelum allan liðlangan daginn, en það besta er að ég fékk FULLT af hugmyndum til að blogga um og lærði heilmarkt sem ég þarf að deila með ykkur seinna.
 Í dag fór ég hinsvegar í skólann sem var nú bara gaman eftir "langt" frí. Fyrstu tveir tímarnir voru stærðfræði en við þurftum að taka 100 spurninga lífstílskönnun sem allir krakkar í 8-10 bekk á Íslandi taka.
 Þetta var reyndar aðeins betra en að vera í stærðfræðinni (stærðfræðilöt).
Eftir skóla fór ég í starfsþjálfun en ég er í starfsþjálfun á Leikskólanum Ársölum-yngra stigi, það er mjög skemmtilegt að vera með litlu börnunum og manni líður svo vel þarna.
Fór síðan á fótboltaæfingu en ég byrjaði á því að hita upp í íþróttahúsinu og skokkaði 1 og hálfan kílómeter uppi á hlaupasvæði það var hressandi. Síðan dreif ég mig út á gerfigras á æfingu. Kvöldið leið svo hratt og ég var búin að ákveða að fara að sofa klukkan 10, en klukkan er korter í 12...

Nú er ég að komast í rútínu og reyni að fara að sofa fyrir 12 en ekki í kvöld greinilega, en það er væntanlega því ég svaf mikið síðustu nætur. Er byrjuð að taka til föt áður en ég fer að sofa og mér finnst það svo mikið þæginlegra en að vakna og taka sér alltof mikinn tíma í að finna sér föt og mála sig.
Ætla að rífa mig upp klukkan 7 og taka mér fínan tíma í að græja mig.

Outfit morgundagsins klárt.


Eigið góða viku
xx Berglind 

föstudagur, 31. janúar 2014

Kósý herbergisskreytingar


Jæja, fyrsta svona innihalds bloggið mitt.
Undanfarið hef ég horft mikið á youtube-era (semsagt stelpur/konur með youtube stöðvar/channels) og ég ætla að pósta linka af þeim channelum sem ég held mest upp á í lok bloggsins. 
Ég elska að horfa á svona stelpu channela þar sem þær eru að gera svo fjölbreytt myndbönd eins og clothing haul's (sýna hvað þær hafa keypt í ákveðnum búðum), what's in my schoolbag, morning routine, room decorating (herbergis skreytingar), outfit of the day og margt margt fleira.
 Flest eru þetta breskar og bandarískar stelpur á aldrinum 14-20 ára. Þær leggja mikið í myndböndin sín og edita þau mjög vel. 
En yfir í eitt það sem ég nefndi, ROOM DECORATING... ég er búin að hugsa mjög mikið um það í dag að ég þurfi aðeins að poppa upp á herbergið mitt og gera aðeins huggulegra og ég er búin að fá innblástur frá mörgum af þessum youtubeerum.
 Já öhm þar sem ég bý á Sauðárkróki er ekkert til eitthvað kreisí arty hlutir inn í herbergið en jújú það er eitthvað, en ég er að fara til Bretlands 26 febrúar ( tala meira um það seinna ) og þá ætla ég að versla fullt í herbergið í Primark og fleiri búðum.
Er ekkert smá spennt og ég er byrjuð að pinna niður það sem ég ætla að kaupa og þar sem þetta er í fyrsta sinn sem ég fer í Primark mun þetta verða hellun!!  

Uppáhalds youtube channelin mín :

http://www.youtube.com/channel/UCD-MPbacWjQrzg4jqHJQ4RQ

http://www.youtube.com/channel/UCc6W7efUSkd9YYoxOnctlFg

http://www.youtube.com/user/velvetgh0st

http://www.youtube.com/channel/UC2LOY_zd1ZAc1kZPyzoqhMQ

http://www.youtube.com/channel/UCsopuR4Uw3TSA1VPY0MyAfQ

Að lokum ætla ég að setja inn myndir af fallegum herbergisskreytingum sem allir ættu að geta sett up og gert, hvað er betra en að koma inn í kósý herbergi eftir erfiðan dag, leggjast í rúmið og slappa af ?

Þetta er gott dæmi um kósý og stílhreynt stelpuherbergi, flest húsgögn færðu í Ikea
og einnig smáhlutina en þú getur fundið þá hér og þar, límmiðann getur þú gert og hannað sjálfur
í Fab Lab og t.d. hjá VEGG. Einfaldast væri að Googlea " vegglímmiðar " og þú munt ekki
deyja ráðalaus.


Skipulagt herbergi ! Það verður ekki betra, flokkaðu alla smáhluti eins og snyrtidót,
skartgripi, naglalökk og ýmis aðra hluti í kassa/box eða skálar. Mikið þægilegra en að raða
því lausu á borð og reka sig síðan í hlutina þegar þú ætlar að sækja þá og allt verður eins og domino.
Ekki bara í svefnherberginu sem er gott að flokka, það er ofboðslega þæginlegt að flokka eins
mikið og maður getur af hlutum á heimilinu eins og í eldhúsinu,búrinu og tölvuherberginu.


Closet on We Heart It.
Skipulag á fötum og skóm er himnaríki ef maður gengur vel um það. Það er mikið inn
núna að loka ekki fyrir fötin heldur leyfa þeim að njóta sín sem einhverskonar stílskreytingu
í herberginu. Það sem þú þarft er herðartré, slá, hillu og verkfæri og að sjálfsögðu gætiru
fengið þér smið.
En meira skipulag, svo snyrtilegt.

Cute room inspiration :) <3
Ljósir litir,pastel litir eru mikið inn þessa dagana í svefnherbergjum.
Einnig er mjög flott að hafa marga púða í rúminu, þú getur keypt þér
púða í rúmfatalagernum,ikea,svefn og heilsu og fullt af fleiri stöðum.
Svo ef þú ert erlendis mæli ég með PRIMARK allan daginn, gordjöss púðar þar.


Sniðug og flott hugmynd og einföld líka.


cute. ♥
Dæmi um virkilega hlýlegt og kósý herbergi.



Yankee kerti er örugglega vinsælasta "skrautið" i herbergið þessa stundina amk hjá Bretum.
Sumir eru með 4-5 kerti á borði mjög sætt! Líka mjög góð lykt af þeim. Þú getur keypt
Yankee kerti á Íslandi, í flestum blóma og gjafavöruverslunum og einnig hér http://www.ishop.is/is/3_yankee-candle. En ódýrust eru þau þó erlendis í Orginal búðinni.

Yfir 100 tegundir af lyktum.



Myndbönd með allskins hugmyndum fyrir herbergið

http://www.youtube.com/watch?v=ugCJVhrdCK0

http://www.youtube.com/watch?v=8h98O2jZobU



Þangað til næst
xx Berglind 

Berglind á bloggheiminn

Jááá ótrúlegt en satt þá hef ég smitast af bloggæðinu! 
Trend trend trend og aftur trend… og þetta blogg er svo sannarlega staðurinn sem ég mun setja það sem mér finnst vera “heit trend” núna þessa dagana. 
Ég ætla svo að reyna að halda þessu gangandi svo fólk nenni virkilega að lesa bloggin og fylgjast með mér en aðallega finnst mér þetta skemmtilegt og drepur tíman í leiðinni.. ætti kanski frekar að vera úti að hlaupa eða hreyfa mig en ég heng hér í tölvunni enda föstudagur.
 Blogg daglega ?  neei ég held ekki, þá fengi ég fyrst og fremst leið á þessu og hvað þá þið.
En já þeir sem þekkja mig virkilega ekki sem ættu að vera fáir afþví að ég ætla ekki að opinbera síðuna fyrir öllum, heldur bara þeir nánustu sem fá að fylgjast með…. eflaust einhverjir hugsa.. nei andskotinn blog central númer 2 ? U nei þetta blogg verður ekki þannig ég er ekki að fara blogga daglega um daginn minn í hnotskurn, þetta er fashion trend blog eða hvernig sem maður ætti nú að orða það…
 Ætla ekki að hafa þetta “opnunar blogg” mikið lengra og ætla ég að drífa mig í sund með elskulega pabba.


Þangað til næst
xxBerglind ♡